March 2003 Archives
Ég vil benda lesendum þessarar síðu (sérstaklega þeim sem eru mér ekki velviljaðir) á að á heimili mínu eru 2 styggir pitbull hundar sem hefðu bara gaman af að kjamsa á óboðnum gestum... Fékk frekar spooky sms í gærkvöldi þar sem lýst var yfir áhuga á að tæma íbúðina mína þar sem ég væri ekki heima. He he he, hefði gjarnan viljað sjá aðkomuna eftir að þeir Hoffmann og Hillaríus hefðu lokið sér af!
Ég get eiginlega ekki ákveðið mig hvort ég eigi að búa í Bel Air eða Beverly Hills (en UCLA campusinn er staðsettur þarna mitt á milli). Ég gæti náttúrulega fengið að leigja herbergi hjá Clint Eastwood vini mínum (en hann á hús í Bel Air). Hann myndi örugglega fíla það vel, því við Rebekka gerðum góða hluti á veitingastaðnum hans, Hogs Inn í Carmel hérna um árið, og hann þekkir okkur af góðu einu. Ef ég ákveð að búa frekar í Beverly Hills þá verð ég að bíta í það súra epli að húsið þeirra Brads og Jennifer er því miður of langt frá campusnum að mínu mati, þannig að ég gæti þurft að búa hjá Michael Douglas og fjölskyldu í staðinn. Veit samt ekki hvort ég myndi þola Kötu Zetu... Svo er spurningin hvort maður fái sér bíl og verði grand á þessu og leigi húsið hans Sting á Malibu beach. Einungis 2 milljónir á mánuði í leigu. Það er náttúrulega ekki neitt. Þá byggi maður í næsta húsi við Leo. Þannig að það yrði alltaf nóg af partýum í götunni og svona...
Sérlega glæsileg... Grænamýri 12, check it out... Takið sérstaklega eftir dömulegum skónum í forstofunni, þeir fylgja þó ekki með íbúðinni. Tilboð í Orbitrek-ið óskast sérstaklega, um glæsilega græju er að ræða, lítið notaða (eins og sést).
Er að fara að hitta gömlu kærastana mína, þá Hákon og Hlyn í kvöld. Við brölluðum nú ýmislegt saman í MR hérna í den. Hlakka geðveikt til að hitta þá.
UCLA UCLA UCLA UCLA UCLA UCLA UCLA UCLA UCLA UCLA UCLA UCLA UCLA UCLA UCLA UCLA UCLA UCLA
Hæ hæ!
Ég er komin inn í UCLA !!!!!!! Ég er svo glöð að ég er að deyja. Brandon, Brenda, Dylan, Kelly, Donna, Steve, David og Andrea Zuckerman verða með welcomming party handa okkur þegar við komum þangað í haust. Það er alveg ljóst að ég vel UCLA...
Knús,
Anna Þorbjörg LA-gella
Mér finnst Paogol vera lélegasti bloggari allra tíma, ég lýsi yfir frati á hann.
... hver er Anna?
Nú gengur um net póstur þar sem að viðtakandi er beðinn um að svara nokkrum spurningum um sjálfan sig og senda svo áfram til vina sinna... Kenningin er svo sú að með þessu móti komist maður að ýmsum staðreyndum um vini sína (þegar þeir svara og áframsenda). Ekki veit ég nú hversu miklar staðreyndir eru hér á ferð - en allavega, hér er mitt innlegg í umræðuna (hehe, Torfi, ég stal textanum þínum):
1. Hvernig býrð þú? Í stórglæsilegri íbúð á Seltjarnarnesinu (sem er einmitt til sölu sbr. færslu 25. mars).
2. Hvaða bók ertu að lesa núna? Breakfast of Champions eftir Kurt Vonnegut.
3. Hvaða mynd er á músamottunni? Er ekki með músarmottu.
4. Uppáhalds spil? Trivial, Partýspilið, Fimbulfamb...
5. Uppáhalds tímarit? In Style, Now, Vouge, FHM... allt eftir því í hvernig stuði ég er hverju sinni... (Enginn rembingur hér að nefna Economist eða slík blöð... bara hreinskilnin uppmáluð).
6. Uppáhalds ilmur? konu eða karla? - Addict (Dior) og Fragile (Gaultier) fyrir konur og blái karlinn frá Gaultier fyrir karla...
8. Hræðilegasta tilfinning í heimi? Að vakna daginn eftir gott kvöld með black out... og kannast ekkert við náungann sér við hlið (DJÓK, ég hef sko aldrei lent í því! Ég væri a.m.k. ekki til frásagnar hefði það gerst því Reykjavíkurhöfn væri næsti áfangastaður...)
9. Hvað er það fyrsta sem þér kemur í hug þegar þú vaknar á morgnanna? Mmmmmmm... 2000 ónotaðar kaloríur til ráðstöfunar í dag!
10. Rússíbani, hræðilegur eða spennandi? Hræðilega spennandi.
12. Hvað eiga ókomin börn þín að heita? Jón Bjarni og Hildur
13. Uppáhalds matur? Blóðugt nautakjöt, sushi, kjúklingabringur, Cheeseboard-pítsa, sælgæti, Nóa lakkríssprengjur...
14. Súkkulaði eða vanilla? Súkkulaði!
15. Finnst þér gaman að keyra hratt? Tjaaa, ég er að verða svoddan tsjedling að ég er hætt að þora þessu... Ætlaði að fara að segja að það væru orðin 3 ár síðan ég fékk sekt fyrir hraðakstur, en mundi svo að ég fékk eina í síðustu viku...
16. Sefur þú með tuskudýr? Já, 3 bangsa, hundinn Tom, bangsann Pál og górilluna Palla.
17. Óveður, spennandi eða hræðilegt? Eldingar eru svoldið spennandi...
18. Í hvaða stjörnumerki ertu? Með sól í Meyju en tungl í Steingeit og rísandi í Sporðdreka... Ég er ekki að djóka, ég fékk stjörnukort í útskriftargjöf og það er alveg right on spot með mig... Hefði aldrei getað trúað því... Setning úr stjörnukorti mínu valin af handahófi: "Þú hefur sterk áhrif á fólk í ljósi heitra og kraftmikilla tilfinninga og hefur kynþokkafulla útgeislun sem laðar hitt kynið að þér". Je je! Þurfum við frekari sannana við? Það er alveg augljóst að staða himintunglanna á fæðingarstundu hefur gríðarleg áhrif á persónuleika og líf manneskjunnar...
19. Borðar þú stönglana af brokkóli? Nei, en mér finnst brokkólí samt geðveikt gott.
20. Ef þú mættir velja hárlit þinn hver væri hann? Ég vel háralitinn minn sjálf (eins og sést á örum breytingum hans síðustu ár). Dökkbrúnn er því svarið.
21. Uppáhalds búð? Úff þessu get ég ekki svarað... En mér finnst best að versla í matinn í Hagkaupum í Kringlunni...
22. Uppáhalds þættir? Friends, Temptation Island, The Bachelor, That 70's show, dýralífsþættir (sérstaklega þegar apar eru sýndir), Practise, Sopranos, Sex and the City... Ég horfi allt of mikið á sjónvarpið!
23. Notarðu fingrasetninguna á lyklaborðinu? Já, ég held m.a.s. að ég fengi 10 í vélritun væri ég í Versló.
24. Hvað er undir rúminu þínu? Gömul slúðurtímarit
25. Hverju safnar þú? Gömlum slúðurtímaritum (óvart)
26. Hvað myndir þú vilja finna upp? Tímavél og líka vél sem frystir tímann fyrir mig (þegar mig vantar meiri tíma fyrir próf og svoleiðis).
27. Uppáhalds talan þín? 4 og 9 (auljósar ástæður, fædd 4.9. sko), svo hef ég alltaf verið svoldið veik fyrir tölunni 7. Ég var samt alltaf númer 6 í boltanum hérna í den, þannig að ég get ekki gert upp á milli... Mér finnast samt 3, 5 og 8 vera ljótar tölur... Veit ekki afhverju...
...Jamm, svo mörg voru þau orð, eruð þið einhverju nær ?
Þeir sænksu segja að blóð sé þykkara en vatn [berist fram með syngjandi röddu: blúúd er sjokkara en vatten]. Hef ég því ákveðið að birta nöfn bestu vinkvenna minna (eftir skyldleika skv. Íslendingabók):
Brynja Baldursdóttir (erum faktískt 3 menningar því við erum tvisvar tengdar í 4. ættlið)
Ólöf Hildur Pálsdóttir (4. og 3. ættliður)
Elín Knudsen (5. og 4. ættliður)
Dagný Hreinsdóttir (5. og 5.)
Svanhildur Sigurðardóttir (6. og 5.)
Hildur Sesselja Aðalsteinsdóttir (5. og 6.)
Þið hinar megið éta það sem úti frýs. Nei nei, ég segi nú bara svona.
Ég ákvað líka að skoða stjórnmálamenn með sama hætti:
Davíð Oddson (5. og 5.) Best að kjósa þá hann.
Solla (6. og 5.). Merkilegt nokk, við erum tengdar í gegnum langa langa langa ömmu mína sem heitir Gróa. Hehehehe.
Ég var minna skyld hinum körlunum og kerlingunum sem ég nennti að skoða.
Palli og ég erum svona frekar safe, erum skyld í 8. og 9. Það er nú alveg með ólíkindum á þessu litla landi í hverju maður getur lent í þeim efnum. Stelpa sem ég kannast aðeins við fór einu sinni á deit (og byrjaði með) þremenning sínum, sem hún hafði aldrei hitt áður en hún brá sér til Þórsmerkur eina örlagaríka helgi fyrir allnokkrum árum... Spooky shit. Hehehehheheehhehehe heeeeeeeee grenj.
Hæ hæ, 111,6 fm íbúð til sölu með 30 fm bílskúr. Íbúðin er við Grænumýri 12, e.h. með svölum og sérinngangi. Dökkt parket á gólfum (ekki rauður merbau tónn heldur mutany sem er brúnleitt). Innréttingar eru úr kirsuberjavið sem og viðarrimlagluggatjöld í íbúðinni. Eldhústæki eru úr burstuðu stáli og koma frá ítalska framleiðandanum Smeg. Ásett verð er 21,5 mills (fari íbúðin ekki í gegnum fasteignasölu). Stórglæsileg eign, ekki missa af þessu einstaka tækifæri ;) Áhugasamir hafi vinsamlegast samband við Önnu Þorbjörgu (s: 8222877). Íbúðin verður til sýnis næstu helgi eða eftir samkomulagi.
Hið ómögulega hefur gerst, Palli er farinn að blogga!
Óskarsblogg
Sá ég aðra Chicago en allir aðrir? Nei, Palli og Rebekka sáu greinilega sömu útgáfu af myndinni og ég. Ég skil ekki allt húplað í kringum þessa mynd. Hún var einfaldlega ömurlega leiðinleg. Leiðinleg, leiðinleg, leiðinleg! Ég var að skoða spjallþræðina á IMDB og fólk þar heldur varla vatni yfir henni... Það er einhver herferð í gangi þar um að allir eigi að skrá sig inn á fullt af notendanöfnum og gefa myndinni 10 í einkunn þannig að hún hækki á listanum yfir 250 bestu myndir allra tíma... Fyndið. Alltaf þegar ég gef einkunnir þar sem maður sér einkunnina fyrirfram þá gef ég öfgakenndar einkunnir þannig að meðaltalið færist nær því sem mér finnst rétt. Lærifaðirinn Helgi Tómasson hefur þannig rétt fyrir sér þegar hann segir að það sé ekkert að marka þegar fólk er látið gefa einkunnir á þennan hátt. T.d. ef ég sé Chicago fá einkunn yfir 5 (sem myndin á kannski skilið fyrir búninga og skammlausan leik flestra (þó alls ekki Richard Gere) þá mun ég gefa henni einkunnina 1. Önnur mynd á síðasta ári sem mér fannst ömurleg en greinilega einhverjir fíluðu er the Road to Perdition. Kvikmyndataka og vinnsla var þar til fyrirmyndar, leikurinn ágætur (reyndar þoli ég ekki Tom Hanks, mér finnst hann eitthvað svo vangefinn, hann ætti að halda sig við Forest Gump þar sem hann er afar trúverðugur), en myndin var drepleiðinleg. Gefið mér þá frekar myndir á borð við Van Wilder, ég meina það!
Ástæða þessarar kvikmyndaumræðu er sú að Óskarinn er í kvöld eins og allir vita. Vúhú! Steve Martin verður kynnir, en mér finnst hann vera besti kynnir undanfarins áratugar (eða síðan ég byrjaði að fylgjast með Óskarnum af einhverri alvöru). Steve er skemmtilega ósvífinn og kaldhæðinn, hin kynþokkafulla Whoopy og hinn sjarmerandi Billy eiga ekkert í Steve. Steve gerði líka einu vanmetnustu mynd síðustu ára, Bowfinger. Sú mynd var ógeðslega fyndin.
Mér finnst mjög leiðinlegt að rauða teppið verði ekki í ár, en þar hefur maður séð hinar frábæru Rivers-mæðgur hrósa stjörnunum fyrir óaðfinnanlegan klæðaburð sinn og spyrja út í hver hannaði átfittið og svoleiðis. Það er alltaf hin mesta skemmtan. Í gegnum árin höfum við svo getað hlegið okkur máttlaus af smekkleysi Cher (reyndar fer hún nú eiginlega hringinn), Celine Dion, Sharon Stone, Geenu Davis svo einhverjar séu nefndar... En á stríðstímum má maður víst ekki hugsa um hver klæðist hvaða flík og hvar skartið var fengið að láni...
Við vinkonurnar höfum verið að hugsa um hvað gerist ef Óskarshátíðin verður sprengd í loft upp... Þá þarf að hafa hraðann á og manna Hollywood upp á nýtt. Eftir miklar vísindalegar rannsóknir höfum við komist að því að við erum manneskjurnar í störfin. Hildur Sess er sjálfkjörin í hlutverk Juliu Roberts, Juliette Binoche og Julianne Moore, enda sláandi lík þeim stöllum. Lil' Dee mun taka að sér hlutverk litlu sætu ljóskanna og fær Reese Witherspoon og Renée Zellweger hlutverkin. Ragnhildur fær náttúrulega Amöndu Peet (enda voru þær víst seperated at birth) og einhver hefur nefnt Ashley Judd, þó svo að ég eigi nú erfiðara með að sjá það. Me, myself and moi verðum svo í hlutverkum Kötu Zetu, Söndru Bullock (ég hata þær báðar, þannig að mér finnst lítið mál þótt þeirra dauði verði mitt brauð). Reyndar hefur helst verið sagt við mig í gengum árin að ég sé lík Tiffani-Amber Thiessen, Lisu Marie Presley og Rachel Weisz. Aumingja þær... Palli verður svo með hlutverk þeirra Ben Affleck, Paul Rudd og James Caviezel. En rúsínan í pylsuendanum er náttúrulega Rebekka í hlutverkum Jim Carrey.
Nú eru svörin að streyma inn frá skólunum. Komin með 2 nei (UCSD og Harvard), 2 já (UCSB og Boston University) og 2svar á biðlista (NYU og Boston College). Má búast við svörum frá Columbia, UCLA, Stanford og Berkeley á hverri stundu. Þetta tekur ekkert smá á taugarnar. Nú veit ég til dæmis ekkert hvort ég á að gerast strandarstúlka í Cali (gamall draumur) eða fara til Boston í aðeins hærra skrifaðan skóla... Hvað finnst ykkur? Sá á kvölina sem á völina (ái, hvað þetta var lélegur brandari). Best væri náttúrulega ef Berkeley myndi bjóða mér skólavist. Það væri toppurinn. Þá næði ég að sameina Cali-drauminn og fullkomið nám. En ég geri mér svo sem ekki miklar vonir...
Mikið gríðarlega er Chicago ömurleg mynd. Það er algjört hneyksli að hún hafi fengið 13 tilnefningar. Kata Zeta og Queen Latifah voru svo sem ágætar að því leyti að þær klúðruðu engu. Mér fannst Richard Gere vera ömurlega lélegur og Renée Zellweger er náttúrulega bara óþolandi væluskjóða með bulimiu-kinnar. Við fórum 3 saman á hana í gær og vorum öll sammála um að hér hafi tíma og peningum verið sólundað til einskis. Við hefðum til dæmis getað séð Adaptation aftur, en þar er á ferðinni snilldarræma. About Schmidt er líka traust. Svo sá ég Gangs of New York sem er bara nokkuð góð, betri en ég hafði þorað að vona. Varð reyndar fyrir þvílíkri deja-vu upplifun á myndinni, því að slagurinn á milli Dauðu kanínanna og innfæddra minnti mig geðveikt á slagsmál sem áttu sér stað í útskriftarferð MR-inga til Benedorm 1996. Þá lenti Anna Björg vinkona mín í þeirri ógæfu að bresk karaókíóð kerling réðst á hana og tók fish-hook á hana þegar Anna var í miðjum klíðum uppi á sviði (með Neselítunni) að taka Flashdance... Já, nú þarf ég bara að sjá The Pianist, Fridu og The Hours svo ég geti horft á Óskarinn á sunnudaginn.
Santa baby!
Getið hver er kominn inn í Ph.D. prógrammið í hagfræði við Santa Barbara? Smá vísbending: Fyrsti stafurinn í nafninu er Anna Þorbjörg Jónsdóttir!
Já já, nú verður það bara sól, surf og sætir kokteilar... Líka stutt í Sierra Nevada fjöllin á skíði og Lake Tahoe. Ég vissi alltaf að ég væri California beach babe... Now the world will know. MJ og Bubbles the III eru ekkert smá spenntir að fá mig út... Fæ kannski að búa hjá þeim í Neverland næstu árin.
Annars er gríðarlega þungu fargi af mér létt. Ég sótti um slatta af skólum, var búin að fá eina neitun (pælið í því maður, hehe) og svo "on the very top of the waiting list" frá einum öðrum... en ég á eftir að heyra frá 7 skólum. Sjáum til hvað þeir segja, en ég er geðveikt sátt við Santa Barbara. Eden og CJ taka á móti okkur á flugvellinum. Gott ef Gina mætir ekki líka...
Það eru bara allir með barni í þessum heimi nema ég (og kannski örfáar aðrar)... Ótrúlegt! Vinkonur mínar sjá einar og sér um mannfjölgun landsins. Gott hjá þeim, það vantar nefnilega alltaf gott fólk. Einhvern tímann las ég um óhagstæða þróun, sko það væri ekki "rétta fólkið" sem væri að eignast börn. Held að sú kenning verði algjörlega endanlega afsönnuð á árinu. Til hamingju stelpur!
Ég er búin að ákveða að hreinsa sál mína og líkama eftir árshátíðir síðustu helgi og skella mér í 3ja daga skíðaferð til Akureyrar næstu helgi með Geitunum. Við vitum náttúrulega öll að það sem gerist á Akureyri helst á Akureyri, er það ekki? *blink, blink*. Stuðið verður í sumarbústað Seðlabankans, alltaf gott að þekkja innanbúðarmenn þar.
Hvað fær maður mörg mojo-stig ef Norsari fer úr sokkunum fyrir mann?
Daginn í dag tileinka ég Rebz in da Hood, Edurardo og Durbal. Héðan í frá skal þeirra alltaf minnst þann 6. mars!
Justin Timberlake (einnig þekktur sem Úlf Viðar Níelsson) er snillingur. Fyrir utan það að vera eitt helsta efni okkar Íslendinga í hagfræðinni er hann einfaldlega stórkostlegur tónlistarmaður og dansari. Ég hef varla haldið vatni yfir langinu Cry me a river síðan ég heyrði það fyrst, hélt að þetta yrði kannski einhver bóla hjá mér, ég myndi fá ógeð á því eftir nokkra daga. En lagið er bara eins og gott rauðvín, batnar bara með aldrinum (hata reyndar þessa samlíkingu).
You were my sun
You were my earth
But you didnt know all the ways I loved you No
So you took a chance
Made other plans
But I bet that you didnt think they would come crashing down No
You dont have to say
What you did
I already know
I found out from him
Now there's just no chance that you and me
There'll never be
Dont it make you sad about it?
You told me you loved me
Why did you leave me all alone?
Now you tell me you need me
When you call me on the phone
Girl I refuse, you must have me confused with some other guy
Bridges will burn
Now its your turn, to cry
Cry me a River
Cry me a River
Cry me a River
Cry me a River
You know that they say some things are better left unsaid
It wasn't like you only talked to him and you know it
(dont act like you dont know it)
All of these things people told me keep messin with my head
(Messin with my head)
Should've picked honesty then you may not have thought of him
Oh. The damage is done so I guess I'll be leavin'
Cry me a river
Annars er dagurinn í dag góður dagur. Nokkur afmælisbörn. Brynja og Eiki, til hamingju! Ég á líka svona hálfpartinn afmæli...
Ég á ekki til eitt aukatekið orð yfir nýjustu fréttunum úr íslenskri pólitík. Hvað er eiginlega til í þessu máli með Jón Ásgeir, Davíð Oddsson, Hrein Loftsson? Hver sagði hvað við hvern og í hvaða tón? Ég meina maður segir nú ýmislegt í gríni... en kannski ekki alveg allt. Líka gott að geta borið við smá djóki svona eftir á. Auðvitað verður Jón Ásgeir að kæra Davíð. Ég verð að segja að ég trúi landsföðurinum, en samt held ég að hann komi ekki óskaddaður út úr þessu máli. Jamm, og á svo Baugur Fréttablaðið? Þetta mál er allt hið loðnasta. Ég er farin á stúfana og ætla að komast að hinu sanna í þessu máli... Fylgist með. Skúbbið verður mitt, ég þekki nefnilega konu í Hafnarfirði sem er með ansi skemmtilega aukavinnu. Lúxuspakki í Lóninu með öllu kostar 30 þúsund og merkir menn úr viðskiptalífinu hafa keypt gullpakkann hjá henni. Je je.
Jújú, þúttú úr fúrúr þúg Rúgnhúldúr mún. Skúmmtúlúgt úð húfú svúnú dúlmúl súm úngúnn skúlúr númú vúð. Vúð gútúm nú skúpst ú lúnúlúgúm úpplúsúngúm úfúr úntúrnútúð. Smú prúfú: Hvúð úgúm vúð úð gúrú í kvúld? Þú gútúr svúrúð múr ú húmúsúðúnnú þúnnú úg úngúnn mún skúljú úkkúr. Húhúhú.
Palli á afmæli, er 27 í dag. Foreldrar hans gáfu honum voða sæta afmælisgjöf, en það sem verra var er að á kortinu stóð til hamingju með 28 ára afmælið! Þau ætluðu bara að stela af honum einu ári rétt sísvona.
Veislan um síðustu helgi var frábær. Ég held bara að þetta hafi verið ein sú albesta veisla í manna minnum (og óminnum) þó ég segi sjálf frá. Ég er alveg yfir mig ánægð með allt saman. Fékk náttúrulega fullt góðra gjafa, en best af öllu var söngurinn frá hinum og þessum gestum. Fjölskylda mín fékk að kynnast hinni sönnu Önnu "What a feeling", þau skömmuðust sín ekkert svo mikið (nema kannski Rúzý). Rebekka, Day Johnson, Bensi Jackson, Lil' Dee, Sasa, Hildur, Herra og frú Kristín, Systkynadúettin Stulli og Ragga Idol, Óli, Pagol og Dóri stóðu upp úr á meðal jafningja í söngnum. Verst fannst mér að Hávallakórinn skyldi ekki taka lagið (en það eru pabbi og bræður hans, einn bróðirinn í hópnum var ekki búinn að fá sér nógu marga bjóra til að það gengi eftir...). Hann Árni hjá Diskótekinu Dollý sagði að þetta væri í annað skiptið sem græjurnar væru pantaðar í heimahús frá upphafi og það skvettist bjór eða einhver fjári í báða hátalarana (sem betur fer ekki í þann síðari fyrr en klukkan 3 um morguninn því þá var ekki hægt að spila meira), sem hefur víst ekki gerst á böllum út um allan bæ, sem þýðir að partýið fær ansi margar * á rokk og ról kvarðanum. Mamma sá til þess að ekki yrði kvartað yfir látunum í okkur. Hún gekk um hverfið kvöldið fyrir boðið með skál fulla af eyrnatöppum og varaði nágranna okkar við að karókípartý myndi standa fram eftir öllu næsta kvöld. Mamma er traust.
Jæja já. Er búin að vera 3ja barna móðir í Garðabænum þessa helgi. Sú elsta er að verða 10 ára og er svakalega dugleg og góð. Við bökuðum, spiluðum og horfðum á vídeó. Sá í miðið er að verða 8 ára og sparkar bolta út um allt hús og vinnur okkur stelpurnar í spilamennskunni. Sú yngsta er yndisleg, alveg eins og ég (tíhíhí), knúsar mann og kyssir og leiðir út um allt... Ég þarf ekki mín eigin börn þegar ég hef þessi öðru hvoru.
