April 2003 Archives

Jæja, var að koma úr

| | Comments (0)

Jæja, var að koma úr 5 daga ferðalagi.

Við byrjuðum á að fara í Lambhagann með famelíunni. Það var rosa fínt. Ég bjó til páskaeggjaratleik handa krökkunum sem voru mjög sátt með hann, enda æsispennandi ferðalag um sveitina þar sem hættur á borð við soltna eggjasjúka snáka leyndust á bak við hvern hól. Litla frænka (Anna hennar Helgu sys) er svo sæt. Hún er 18 mánaða og hún er ekki alveg að fatta að tvær manneskjur geti borið sama nafn. Hún er svakalega skýr og veit alveg hvað allir heita nema hún hefur aldrei sagt hvað ég heiti áður. Svo var mamma eitthvað að kalla á mig. "Anna mín, Anna mín" og litla Anna varð svakalega glöð að fatta allt í einu hvað hún gæti kallað mig og núna segir hún bara Annamín (í einu orði) þegar hún vill fá athygli mína (sem hún hefur reyndar nær óskipta). Hún er sko Anna og ég er Annamín.

Eftir hömlulaust kræsingaát í Lambhaganum fórum við svo með Huldu, Óla, Bjargeyju og co. í jeppaferð upp á Vatnajökul. Þetta var alveg mögnuð ferð! Blankalogn og heiðskírt alla dagana. Við gistum í Smyrlabjörgum (eða Skjólaklettum eða eitthvað svoleiðis) og svo í skálanum á Grímsfjalli. Sá skáli er alveg magnaður. Í 1700 m hæð og með náttúrulegu gufubaði, maður kastði bara smá snjó í hver sem er undir gufuskálanum. Nice. Í ferðinni voru 7 jeppar, 5 Land Cruiserar, einn High Lux og svo Cheeroke Jeep-inn hans Davíðs (nýi besti vinur okkar, en við sátum í jeppanum hjá honum). Ég hef aldrei áður farið í svona jeppaferð og satt best að segja var ég fordómafull í garð jeppakalla almennt. Mér hefur nefnilega alltaf fundist algjört svindl að þeir komist um allt á jeppunum þegar göngufólk þarf að vinna fyrir sinni náttúruupplifun... (Smá biturð hér, því eftir 8 klst göngu upp á Hvannadalshnúk síðasta sumar voru nokkrir jeppar á toppinum með díselreykinn úr pústinu alveg á fullu). En ferðafélagarnir um helgina hefðu ekki getað verið betri. Þeir kunnu líka að taka á því í skálunum á kvöldin ;) Smá fyndið með svona jeppakalla (Óli not included), þeir eru alltaf að taka myndir af bílunum. Einn aðalkallinn (sko á jeppanum með stærstu dekkin) þvoði bílinn sérstaklega rétt áður en við komum upp á jökulinn til að bónið glansaði betur á öllum myndunum af bílnum. Ég reyni einmitt að taka náttúrumyndir þannig að ekkert sjáist af mannvirkjum eða vélum á myndunum. Nú er maður bara að drepast úr millirifja-harðsperrum í bakinu eftir allan hossingin á jeppunum. Enda voru mikil átök, eitt drifskaft, einn öxull og einn kassi (?) fóru í ferðinni. En þetta verða góðar sögur svona eftir á...

Jæja, er búin að finna málið úti í USA... The Zone Gourmet home delivery...

Já, alveg þegar maður er

| | Comments (0)

Já, alveg þegar maður er búinn að ákveða að fara til UCLA býður Boston College manni skólavist án þess að ég þurfi að borga skólagjöld og m.a.s. með styrk upp á rúma milljón á ári næstu 5 árin (án þess að þurfa að vinna fyrir því). Jeeez, hvað ég nú til bragðs að taka?

Vonandi fer þetta að lagast.

| | Comments (0)

Vonandi fer þetta að lagast. Frekar pirrandi.

Blogger er farinn að stríða

| | Comments (0)

Blogger er farinn að stríða mér eitthvað aftur, ég sé ekki gömlu bloggin mín til dæmis og svo hefur ekkert birst af því gríðarmikla og skemmtilega efni sem ég hef verið að skrifa upp á síðkastið.

Mér er farið að leiðast allt þetta vesen með blogger, svo langar mig líka til að eiga alvöru flotta heimasíðu. Ég meina þessi er ekki mikið fyrir augað. Mig langar í svona töff síðu sem ég get sett inn myndir af öllum Hollywood-stjörnunum sem verða bestu vinir mínir næstu árin og svoleiðis. Ég nenni bara ekki að búa til síðuna sjálf. Vill einhver hanna flotta heimasíðu handa mér? Kenna mér svo hvernig ég set inn myndir og önnur skemmtilegheit (t.d. hljóðupptökur með fögrum söng mínum og kannski myndbandsbúta úr Cox-Arquette karókípartíunum...)

Þeim sem ekki hafa áttað sig á því hver ég er (engin(n) hér líklegast) eða vilja kynnast mér enn betur er bent á heimasíðu Ökonomíu, en þar er ég í spekingaspjalli, enda sérdeilis spök manneskja.

Sumir sem eru í miklu dálæti hjá mér tala stundum um draumana sína á vefnum. Mig dreymdi í fyrrinótt að ég væri Guð. Þetta var mjög sterkur draumur hjá mér og ég var að fylgjast með mönnum (sem ég elskaði út af lífinu, en þeir voru samt engir sem ég, sko Anna, þekki, Guð elskar nefnilega alla menn) fara sér að voða á brimbrettum í himinháum öldum. Ég hugsaði eitthvað á þá leið að menn væru ekki alltaf skynsamir og það að fara á brimbrettin í þessu veðri hefði verið þeirra val. Einhver dó og ég vafði hann af ást og alúð inn í silfurofið teppi og lyfti honum upp með mér til himna. Hann passaði akkúrat í lófann á mér (Guði). Svo vaknaði ég alveg steinhissa yfir þessum draumi. Fór svo aftur að kúra og dreymdi þá að ég væri í partýi með Brad Pitt og Brad reyndi að kyssa mig. Hvað ætli þessir draumar þýði?

Spekingur er fæddurEf þið eruð

| | Comments (0)

Spekingur er fæddur

Ef þið eruð að spá í hvort þau séu ekta, þá er svarið einfaldlega nei!

Blogger with a vengence... Það

| | Comments (0)

Blogger with a vengence... Það sorglega er að ég get staðfest þessa sögu...

Annars er Dóri Karl-inn tekinn í sátt. Mun aldrei segja styggðaryrði um þann mann framar.

Ég er spekingur sem verður tekinn í spjall bráðum. Fylgist með.

Við erum búin að selja

| | Comments (0)

Við erum búin að selja Grænumýrina okkar. Buhuhuhuhu, ég á eftir að sakna hennar. En við fengum mjög góða kaupendur sem eiga eftir að hugsa vel um hana. Lífið heldur víst áfram...

Loksins fékk ég official bréfin frá skólunum sem hleyptu mér inn. Ólíkt skemmtilegri en höfnunarbréfin. Þessi bréf eru ekki stöðluð og boring, heldur persónulegri og miklu yndislegri á allan hátt. Je je.

Jæja, nú er ég officially

| | Comments (0)

Jæja, nú er ég officially byrjuð í Cali-megruninni minni. Ég meina ég er náttúrulega geðveikt flott og æðisleg og allt það, (og örugglega ein af fáum með siliconfría C-cup í Cali (og hvað eru mörg c í því?)) en þegar stönglar á borð við Calistu Flockhart, Löru Flynn Boyle, Renée Zellweger, Cortney Cox-Arquette, Jennifer Aniston og fleiri verða mínir næstu nágrannar þá þarf maður að bregðast við... Ég fór því í leikfimi klukkan 7 í morgun. Úff, það var svoldið erfitt því Hildur og Rebz voru hjá mér til að ganga 3 í nótt... En hvað gerir maður ekki fyrir útlitið? Nú ætla ég að fara á hverjum morgni (virka daga) og sprikla í 30 mínútur. Þeir sem sjá mig með Nóa-lakkrís-sprengjur fá hér með heimild til að skjóta mig á færi. Mitt eina indulgence verður hvítvín um helgar...

Mér finnst orðið indulgence frekar fyndið. Við Rebekka hittum nokkra hermenn í Cali hérna um árið og fórum með þeim á all-night-diner. Við náttúrulega vorum ekkert svo penar á því, fengum okkur bara fry-up með öllu. Einn gaurinn (sem skildi íslensku by the way því hann var með þjálfun úr intellectual deild hersins í að ráða í ókunn tungumál) pantaði sér jarðaberja sunday og sagði "once in a while I like to indulge myself" og svo borðaði hann ísinn hægt og rólega og naut hvers munnbita á munúðarfullan hátt [ok, reyndar ekki svo munúðarfullan]. Þetta fannst okkur mjög fyndið þar sem við indulge-uðum okkur nokkrum sinnum á dag þarna úti (eins og ljósmyndir af yours truly frá þessu tímabili sýna glögglega).

Jæja Dóri minn, hvað er aftur sagt um þá sem kasta steinum úr glerhúsi? Að þeir séu fá......? Það þýðir sko ekkert að dissa Palla minn og ásaka hann um að vera maður sem brýtur gegn prinsippum sínum (by the way þá meika ég ekki prinsipp-fólk)... Ég veit ekki betur en að HáKarlinn hafi svamlað í Djúpu lauginni síðasta föstudag. Ég veit ég ætlaði að vera sæt og góð, en það var áður en ég vissi að þú hefðir ráðist opinberlega á þann sem stendur mér næst! Grrrrrrrrrr.....

Hildurin mín er komin í

| | Comments (0)

Hildurin mín er komin í nokkurra daga heimsókn til landsins frá London. Hún flaug til Íslands með kvöldvélinni og auðvitað tók á móti henni frítt föruneyti, me, myself and Agla og Birna. Agla og Birna voru búnar með eina hvítvín og nokkra bjóra þannig að ég var the designated driver. Við mættum á völlinn frekar snemma og ákváðum því að búa til svona skilti fyrir Hildi svo hún myndi nú örugglega finna okkur þegar hún labbaði í gegnum hliðið. Þar sem Hildur er af hinni virtu Norðfjörð-ætt stóð á skiltinu: MISS NOROFJORO. Okkur fannst við frekar fyndar með skiltið okkar... Þangað til við sáum Arnór Guðjónsen, þá alveg hreint dóum við úr hlátri... Rétt á eftir Hildi út um hliðið kom nefnilega óskabarn þjóðarinnar Eiður Smári Guðjónsen ásamt fjölskyldu sinni... Við létum okkur hverfa með Hildi og skiltið út í nóttina. En það var fyndið að það voru nokkrir aðrir á vellinum sem tóku eftir þessari kómísku situasjón og hlógu okkur til samlætis.

Jamm og já.

Palli taka tvö.Er hann ekki

| | Comments (0)

Palli taka tvö.

Er hann ekki duglegur drengurinn? Sá hinn sami og hefur hótað öllu illu láti ég ekki af þessu loftmasi (e. etherbabble).

Jamm við erum komin með nokkra spennta aðila sem hafa gert tilboð í íbúðina. Veit ekki alveg hvað við gerum. Ég tími varla að selja íbúðina. Er komin heim úr vinnunni, fleiri eru að koma að skoða...

The University of Big Ideas

| | Comments (0)

The University of Big Ideas

We are astronauts, healers, creators, scientists and statesmen. Olympians, Oscar winners and Nobel Laureates.

Risk takers.

We live in a village of 60,000. In a region of 8 million. On the rim of the most vibrant cultures and businesses on the planet. Our work enriches millions of lives every year.

We are the family of UCLA.

We broke baseball's color line in 1947. In 1959, invented the technology that made possible the CAT scan. Launched the Internet in 1969. Produced a groundbreaking study of television violence in 1995.

We learn not what to think, but how to think. We come from every point on the globe. Not just to be somebody, but to do something. And time after time, the something we do is change the world.

We are UCLA, the university of big ideas.

Come make the journey with us.

Yes thank you, I think I will! Ég elska þegar fólk talar um að fara í ferðalag. Eins og í The Bachelor... Eða Temptation Island. "It has been an amazing journey... I've learnt so much about life and myself..."

Rebekka Jónsdóttir mun verða á

| | Comments (0)

Rebekka Jónsdóttir mun verða á heimili sínu í dag að árita dvd-diskinn sem var að koma út með henni: Naked Pilates. Fyrstir koma fyrstir fá.