February 2005 Archives
Ég hélt alltaf að ég væri B-manneskja, svona týpa sem vakir lengi á kvöldin og fer helst ekki fram úr fyrr en um hádegi næsta dag. Eftir að ég flutti til Kaliforníu komst ég að því að ég hafði að líkindum bara þjáðst af skammdegisþunglyndi þegar ég bjó á Íslandi. Hér skín sólin á hverjum degi og ég rýk upp úr rúminu klukkan 7 alla morgna. Það er að segja alla morgna þangað til í janúar 2005. Hvað er eiginlega í gangi? Jú, það er búið að rigna álíka mikið hérna síðustu mánuði á meðal íslensku sumri!
Anna Hrefna frænka kom í heimsókn yfir síðustu helgi. Við vorum búnar að skipuleggja heimsóknina með góðum fyrirvara, hún þurfti smá frí frá vetrarveðrinu í NY. Meðal annars var ég búin að plana strandarferð til Malibu og kokteildrykkju á útiveitingastað á Venice. Það hefur rignt hundum og köttum og helst verslanir borgarinnar sem hafa fengið að njóta nærveru okkar. Súkkulaði og sjónvarpsgláp* kom síðan í staðinn fyrir suðræna kokteila á ströndinni... Reyndar ætla ég ekkert að kvarta neitt, það var alveg frábært hjá okkur frænkum, eins og sjá má í nýju febrúaralbúmi á myndasíðunni.
*Sería eitt af Arrested Development var tekin með trompi. Þetta er líklega í fjórða skipti sem ég horfi á seríuna enda fer ég ekkert í laungötur með það að þetta er besta sjónvarpsefni sem ég hef nokkurn tímann séð. Einhverra hluta vegna er bandarískur almenningur ekki á sama máli og nýjustu fréttir herma að þættirnir séu hættir í framleiðslu. Synd og skömm!
