January 2006 Archives

Myndir

| | Comments (5)

Setti inn fullt af myndum frá jólunum og janúar í myndaalbúmið. Sama notendanafn og lykilorð og venjulega.

Tvær örfærslur

| | Comments (11)

Við Palli fórum út að borða í gær. Fyrir tilviljun heyrði ég brot úr samræðum á næsta borði: "I really want to go to Iceland where the inbreads go wild!" Fólk er sem sagt farið að vita meira um landið en að a) það sé grænt (og Grænland þakið ís) og b) að Björk sé frá Íslandi.


Eftir að hafa heyrt mikið talað um myndina "What the bleep do we know?" horfði ég á hana á dvd í vikunni. Hvílíka og aðra eins ömurð hef ég aldrei áður augum litið. Ég var forvitin að vita meira um fólkið sem stendur að baki myndinni og í ljós kom að hún var gerð af nemendum Ramtha's School of Enlightment. Kíkið á www.ramtha.com til að sannfærast. Hefur einhver séð þessa mynd?


Annars segi ég bara gleðilegt ár. Ég lofa ekki að skrifa meira á þessu ári en ég gerði í fyrra.