Skipulagið
Prófatörn eina ferðina enn. 3 próf á 2 dögum í maí, síðan CFA-próf 3. júní. Anna Hrefna frænka og Einar koma til LA og taka CFA-prófið með mér, þannig að ég hlakka í raun og veru til að læra fyrir það próf. Við erum búin á ákveða að leigja okkur pool-side cabana á hóteli í nágrenni við mig og læra við sundlaugarbakkann. Var einmitt að panta mér nýtt lærdóms-bikiní frá shopbop.
Ég er búin að vera að rifja upp reikningshald fyrir CFA prófið síðustu vikur (svona klukkutíma á dag að jafnaði, mér tekst ekki að lesa reikningshald lengur án þess að sofna). Ég er alveg sæmilegur námsmaður, svona þegar ég legg mig fram. Af hverju virðist ég vera ómöguleg í greiningu sjóðstreymis þrátt fyrir að hafa gert í kringum 15 slík verkefni undanfarið? Aðrir hlutar reikningshaldsins virðast skýrir og rökréttir, en mér tekst að falla í sömu gildrurnar síendurtekið í sjóðstreymishlutanum. Hvernig er þetta hægt? Ég sem er búin að ná ágætum tökum á real analysis, measure theory og stókatískum calculus á meðan sjóðstreymi er að halda fyrir mér vöku. Grrr...
Sumarið verður viðburðaríkt. Um miðjan júní á ég von á 4 vinum okkar í heimsókn til Íslands. Við verðum með gesti heima fram í byrjun júlí. Síðan flýg ég aftur til LA um miðjan júlí með Guðrúnu frænku með mér. Við ætlum að skottast í Kaliforníu í 2 vikur áður en hún fer aftur til Íslands og þá koma mamma, pabbi og Sigrún vinkona mömmu hingað og verða fram í miðjan ágúst. Ég mun því verða í gestgjafahlutverki í allt sumar. Ég kvíði því ekki, enda fátt sem mér finnst skemmtilegra en að hafa góða gesti í heimsókn.

Æ en skemmtilegt plan þrátt fyrir eitthvað sjóðstreymiscrap og annað þvíumlíkt. Ég held að principles of financial accounting sé að fara að duga mér skammt í þessu CFA dralli. Sjett... spurning um að fara bara að djenda sér á líbraríið núna.
Læt mig dreyma um pool-side cabanas þangað til þeir verða að veruleika. *dreymi dreym*
Við hljótum að geta massað þetta á 3 vikum. Trúi ekki öðru... Ég held bara að mér finnist reikningshald svo leiðinlegt að ég geti ekki lært það. En það getur varla verið svo hræðilega leiðinlegt ef maður situr við sundlaug að læra, þannig að ég er bjartsýn.
Eina skiptið sem ég hef brosað yfir reikningshaldi var í prófi við HÍ, en þá áttum við að greina efnahags- og rekstrarreikninga Stífluhreinsunar Sturlu Pálssonar. Stulli eiginmaður Helgu sys er einmitt eini Sturla Pálsson á Íslandi (held ég) og síðast þegar ég vissi var hann enn að vinna hjá Seðlabankanum.
Góð saga, ekki satt?
Þú hoppar bara í nýja bikiníið og þá reddast þetta allt. Spurning hvort þú náir ekki að soga eitthvað til þín á meðan þú liggur á bakkanum og svo mætir þú bara í því í prófið og allt sem þú ert búin að stúdera veltur fram í huga þinn!!!
Þú ættir alla vegana að ná í nokkur stig ef þú mætir svoleiðis, það finnst mér.
Að sjálfsögðu mun ég mæta í bikiníinu í prófið. Annars sá ég stelpur í UCSB (háskólanum í Santa Barbara) í bikiníum á skólalóðinni. Held að þær hafi jafnvel farið þannig í tíma, þannig að ég væri svo sem ekkert að gera neitt nýtt. Ég á líka erfitt með að hafna áskorunum, eins og þið vitið sum (sbr. armbeygjur upp á sundlaugarbakka...)
Mér líst fáránlega vel á þetta poolside-plan. Ég lærði undir stúdentspróf í latínu í sólbaði. Þetta voru svona tveir heilir dagar þar sem ég sat úti á svölum með svalardrykk í annarri og Gallastríðin í hinni og reyndi að verða sólbrún fyrir útskriftardaginn. Ég hafði smá áhyggjur af því að ég fengi sólsting og myndi alveg fokka prófinu upp en frá því það kom í ljós að ég hafði fengið níu hef ég haft tröllatrú á því að læra í sólbaði!
Frábært að heyra þetta Guðrún Lára. Það liggur í augum uppi að þetta er skotheld áætlun hjá okkur frænkum.
If it hadn't been for Cotton-Eye Joe
I'd been married long time ago
Where did you come from where did you go
Where did you come from Cotton-Eye Joe
Jíííííí-ha!
Sjittttt... ég heyrði þetta lag inni á veitingastað áðan.
Varstu inni á Wienerschnitzel?
Nei ég var inni á indverskum stað. hahah... fáránlegt.
Nú fer ég að panta miða. 12 dagar? Can it be?