December 2006 Archives
Ég er þekkt fyrir það að fá æði fyrir ákveðnum mat eða matartegundum og þá borða ég helst ekkert annað í 2 mánuði. Þessa dagana er ég með æði fyrir macrobiotic máltíð dagsins á Real Food Daily. Þessi máltíð breytist ekki mikið milli daga, samanstendur af brúnum hrísgrjónum, einhvers konar baunum, gufusoðnu grænmeti, sjávar-grænmeti og pressuðu káli. Með þessu er borin fram himnesk jarðhnetusósa. Himnesk segi ég.
Ég rölti á RFD í hádeginu og fór að velta því fyrir mér að ég sé sjaldan eðlilegt fólk þarna inni. Það eru allir rosalega crunchy (einnig þekkt sem granola). Ótrlúlega mikið af gömlum hippum eða nútíma-flippurum sem borða svona mat. Ég þori að veðja að flestir viðskiptavinanna elska bíómyndir eins og "What the bleep do we know?" og "The Secret". Ég sigli sem sagt undir fölsku flaggi þegar ég fer þangað inn, passa mig á því að vera mátulega kæruleysisleg og mér myndi til dæmis ekki detta til hugar að lesa People magazine þegar ég bíð eftir matnum.
Um daginn sat ég þarna og þá var maðurinn á næsta borði að segja deitinu sínu frá vélinni sem hann hannaði. Þessi vél læknar alla kvilla, hún sendir bylgjur í gegnum líkamann og ef þú ert með vöðvabólgu, gigt, meltingartruflanir, o.s.frv. þá finnur vélin meinið og geilsar það í burtu. Kobe Bryant keypti víst svona vél af manninum. Konan spurði manninn hvort hann notaði vélina sjálfur og hann sagðist að sjálfsöðgu gera það og vélin hefði gert hrein undur fyrir sig. Hann væri til dæmis laus við gigtina sem hefði hrjáð hann árum saman og jafnvel þótt vélin hefði þá hvimleiðu hliðarverkun að hann væri að missa sjónina vegna tíðrar notkunar þá væri árangurinn fyllilega þess virði!
Nokkrum dögum síðar sat ég við hliðina á konu sem kallaði yfir allan veitingastaðinn að sér hefði verið dömpað einu sinni enn. En núna myndi hún ekki verða á lausu lengi, því hún væri búin að skrá sig á námskeið hjá vinkonu sinni: "How to understand men in 4 days". Síðan blaðraði hún hátt allt hádegið um alla mennina sem hefðu farið illa með sig í gegnum árin en það myndi sko ekki gerast aftur, hún myndi skilja menn héðan í frá.
Heather Mills var þarna um daginn. Reyndar leit hún ósköp eðlilega út, en ég veit að oft leynist flagð undir fögru skinni og að oft reynist úlfur í sauðargærunni. Ég lét sem mér finndist ekki mikið til um nærveru hennar en reyndi að sjálfsögðu að hlera hvað ég gat af samtali hennar og tveggja vina hennar. Ég heyrði hana segja skýrt og greinilega: "The fu***** bi** is lying!" Hvort ætli hún hafi verið að tala um Stellu eða Kate? Hver ætli lygarinn sé í þessu máli?
Í hádeginu áðan sat á næsta borði rosalega huggulegt hommapar. Þeir voru mjög ástúðlegir hvor við annan þegar þeir gengu inn, annar strauk hinum létt um mjóbakið og ég hugsaði með mér hvað þeir væru sætir saman. Síðan hringdi síminn hjá öðrum þeirra. Hann svaraði og ávarpaði manneskjuna á hinum enda línunnar alltaf sem "honey". Hann sagðist vera á listasafninu og gæti ekki verið að tala í símann þar inni. Að lokum sagðist hann munu sækja börnin á leiðinni heim frá safninu.
Þetta líf, þetta líf...
Jæja nú jæja. Ég skellti inn nýjum myndaalbúmum frá nóvember í LA og frá Þakkargjörðinni í NY. Þessi mynd er reyndar stolin frá Önnu Hrefnu, en mér finnst hún skemmtileg (myndin og Anna mega báðar taka þetta til sín). Eins og sjá má var mikil gleði í nóvember og ekki verður minni gleði í desember, ég á von á fjölskyldumeðlimum í heimsókn og síðan verða blessuð jólin haldin hátíðleg í Aspen. Þar hefur kyngt niður meiri snjó síðustu vikur en elstu menn muna að gerst hafi á þessum árstíma. Svúp, svúp, svúp...
Ég er að útskrifast með M.S. í fjármálastærðfræði í næstu viku. Tveir masterar á þrem og hálfu ári. Þó að ég líti á það sem algjör forréttindi að geta verið á frábærum stað í góðum skóla að læra það sem ég hef áhuga á þá er ég komin með meira en nóg af skólagöngu. Ég er líka komin með spennandi vinnu í LA og Palli er mjög sáttur í sinni vinnu. Við erum að skoða hús víðs vegar um borgina um þessar mundir.
Þessi síða má muna sinn fífil fegurri. Ég er búin að vera á mörkunum að loka henni í einhvern tíma, en finnst ennþá pínulítið vænt um hana. Hún var nú einu sinni besta vinkona mín fyrsta árið mitt í LA. Ég held að Guðrún Lára sé eini lesandinn um þessar mundir, en veit þó til þess að fjölskyldumeðlimir kíkja af og til á myndirnar. Kannski tek ég mig á í blogginu, kannski ekki. Þangað til finnst mér þessar síður skemmtilegar:
DD-unit. Slúðurdrottning Íslands og góð vinkona mín.
Anna Hrefna. Yndislega skemmtileg, fyndin og frábær frænka mín.
Lygasnótin. Dularfullur kvenmaður í Stokkhólmi.
Joe.My.God. Lesið 'Readers Favorites'
Dlisted. Fyndnasta slúður síðan. Þoli t.d. ekki Perez Hilton.
Jæja, sendið mér nú endilega hlekki á fleiri góðar síður, ég á eftir viku prófatörn.
Ást og virðing,
Anna Þorbjörg
