Sorgleg síða

palliogannalesouk.jpgJæja nú jæja. Ég skellti inn nýjum myndaalbúmum frá nóvember í LA og frá Þakkargjörðinni í NY. Þessi mynd er reyndar stolin frá Önnu Hrefnu, en mér finnst hún skemmtileg (myndin og Anna mega báðar taka þetta til sín). Eins og sjá má var mikil gleði í nóvember og ekki verður minni gleði í desember, ég á von á fjölskyldumeðlimum í heimsókn og síðan verða blessuð jólin haldin hátíðleg í Aspen. Þar hefur kyngt niður meiri snjó síðustu vikur en elstu menn muna að gerst hafi á þessum árstíma. Svúp, svúp, svúp...


Ég er að útskrifast með M.S. í fjármálastærðfræði í næstu viku. Tveir masterar á þrem og hálfu ári. Þó að ég líti á það sem algjör forréttindi að geta verið á frábærum stað í góðum skóla að læra það sem ég hef áhuga á þá er ég komin með meira en nóg af skólagöngu. Ég er líka komin með spennandi vinnu í LA og Palli er mjög sáttur í sinni vinnu. Við erum að skoða hús víðs vegar um borgina um þessar mundir.


Þessi síða má muna sinn fífil fegurri. Ég er búin að vera á mörkunum að loka henni í einhvern tíma, en finnst ennþá pínulítið vænt um hana. Hún var nú einu sinni besta vinkona mín fyrsta árið mitt í LA. Ég held að Guðrún Lára sé eini lesandinn um þessar mundir, en veit þó til þess að fjölskyldumeðlimir kíkja af og til á myndirnar. Kannski tek ég mig á í blogginu, kannski ekki. Þangað til finnst mér þessar síður skemmtilegar:

DD-unit. Slúðurdrottning Íslands og góð vinkona mín.
Anna Hrefna. Yndislega skemmtileg, fyndin og frábær frænka mín.
Lygasnótin. Dularfullur kvenmaður í Stokkhólmi.
Joe.My.God. Lesið 'Readers Favorites'
Dlisted. Fyndnasta slúður síðan. Þoli t.d. ekki Perez Hilton.

Jæja, sendið mér nú endilega hlekki á fleiri góðar síður, ég á eftir viku prófatörn.

Ást og virðing,
Anna Þorbjörg

13 Comments

Anna Hrefna said:

JEIJJJ!!!! MEIR MEIR!!!!

Anna Hrefna said:

JEIJJJ!!!! MEIR MEIR!!!!

Anna Hrefna said:

JEIJJJ!!!! MEIR MEIR!!!!

Brynní said:

Hey, ég kíki alltaf reglulega. Mikið lítur þú nú vel út þessa dagana dúllan mín.

Ég velti því fyrir mér hvort ég sé búin að mála mig út í horn þessa dagana þegar ég sé svona fab djamm myndir. En sé ég að mömmur geta líka djammað... sjáiði bara Britney!

Rags said:

Það lítur út fyrir að Palli hafi verið að choffa, margarítur kannski??

Anna Þorbjörg said:

Takk dúllurnar mínar.

Já, ég hef alltaf sagt það: rútína fer mér vel. Sukk og svínarí aðeins verr...

Mömmur geta svo sannarlega djammað. Mér finnst að þið eigið að koma til LA næsta sumar fjölskyldan. Við getum þá tekið gott djamm og fengið aupair strákinn minn til að passa. (Já, ég ætla að fá mér aupair núna þegar ég er farin að vinna!)

Palli var að choffa, reyndar vodka cranberry drykki í þetta skiptið.

Risaknús handa ykkur öllum.

Solla said:

Gaman að heyra loksins frá þér. Ég hef kíkt reglulega á síðuna þína, bíð alltaf eftir að þú haldir áfram að blogga.

Ein ágætis síða þar sem einhverjar sjálfskipaðar tískulöggur gagnrýna fataval stjarnanna.

http://gofugyourself.typepad.com/

Endilega láttu heyra meira í þér og innilega til hamingju með nýja masterinn.

Anna Þorbjörg said:

Gaman að heyra í þér Solla.

Já fug-stelpurnar eru sniðugar!

Mig langar mikið að kíkja til Sívætlu snemma í vor. Anna Björg er ein besta vinkona mín og það stendur til að hitta þau fljótlega. Gaman væri að hitta ykkur í líka í leiðinni.

Kær kveðja til allra.

Anna Þorbjörg

P.s. Mér finnst rosalega sætt hvað Hrafnhildur Hekla og Arndís Dúna eru góðar vinkonur :)

Solla said:

Já Arndís Dúna og Hrafnhildur eru eiginlega eins og systur, þær rífast yfirleitt eftir svolitla stund en eru samt alltaf jafn spenntar yfir því að hittast.

Anna er líka frábær, mér finnst ekkert smá gaman að hafa kynnst þeim Grími.

Það er náttúrulega alveg spurning hvort má muna fífil sinn fegurri; viðburðalausa síðan eða eini lesandi viðburðalausu síðunnar!!!
ÉG get því miður ekki bent þér á neinar skemmtilegar síður en þakka kærlega fyrir þinn lista, mun án efa notfæra mér hann á næstu dögum þegar ég þarf að skrifa einn ritdóm!
Og til hamingju með masterinn!!!

Anna Þorbjörg said:

Vííí, það er bara fjör í kommenta-kerfinu mínu. Kannski að maður bloggi bara aftur í vikunni? To keep things interesting...

Takk takk elskurnar fyrir að kíkja ennþá hingað inn. Ég verð að viðurkenna að ég geri það stundum sjálf í veikri von um að eitthvað spennandi hafi gerst á síðunni...

Helen said:

Spennó! og til hamingju með nýja masterinn!!! æðislegt!

Hey, hvar ertu að fara vinna?

heyrumst,
Helen

Anna Þorbjörg said:

Hæ, ég tók nú ekki eftir þessu nýjasta kommenti.

Takk fyrir þetta Helen.

Ég er að fara að vinna hjá stórum hedgefund í Beverly Hills. Þeir starfa líka sem market-makers á 25 kauphöllum um allan heim. Titill minn er Financial Economist :)

Post a comment

(If you haven't left a comment here before, you may need to be approved by the site owner before your comment will appear. Until then, it won't appear on the entry. Thanks for waiting.)

About This Post

This page contains a single entry by Anna Þorbjörg posted on December 4, 2006 6:51 PM.

Fréttir was the previous post in this blog.

Real Food Daily is the next post in this blog.

Find recent content on the main index or look in the archives to find all content.