Real Food Daily

| | Comments (13)


Ég er þekkt fyrir það að fá æði fyrir ákveðnum mat eða matartegundum og þá borða ég helst ekkert annað í 2 mánuði. Þessa dagana er ég með æði fyrir macrobiotic máltíð dagsins á Real Food Daily. Þessi máltíð breytist ekki mikið milli daga, samanstendur af brúnum hrísgrjónum, einhvers konar baunum, gufusoðnu grænmeti, sjávar-grænmeti og pressuðu káli. Með þessu er borin fram himnesk jarðhnetusósa. Himnesk segi ég.


Ég rölti á RFD í hádeginu og fór að velta því fyrir mér að ég sé sjaldan eðlilegt fólk þarna inni. Það eru allir rosalega crunchy (einnig þekkt sem granola). Ótrlúlega mikið af gömlum hippum eða nútíma-flippurum sem borða svona mat. Ég þori að veðja að flestir viðskiptavinanna elska bíómyndir eins og "What the bleep do we know?" og "The Secret". Ég sigli sem sagt undir fölsku flaggi þegar ég fer þangað inn, passa mig á því að vera mátulega kæruleysisleg og mér myndi til dæmis ekki detta til hugar að lesa People magazine þegar ég bíð eftir matnum.


Um daginn sat ég þarna og þá var maðurinn á næsta borði að segja deitinu sínu frá vélinni sem hann hannaði. Þessi vél læknar alla kvilla, hún sendir bylgjur í gegnum líkamann og ef þú ert með vöðvabólgu, gigt, meltingartruflanir, o.s.frv. þá finnur vélin meinið og geilsar það í burtu. Kobe Bryant keypti víst svona vél af manninum. Konan spurði manninn hvort hann notaði vélina sjálfur og hann sagðist að sjálfsöðgu gera það og vélin hefði gert hrein undur fyrir sig. Hann væri til dæmis laus við gigtina sem hefði hrjáð hann árum saman og jafnvel þótt vélin hefði þá hvimleiðu hliðarverkun að hann væri að missa sjónina vegna tíðrar notkunar þá væri árangurinn fyllilega þess virði!


Nokkrum dögum síðar sat ég við hliðina á konu sem kallaði yfir allan veitingastaðinn að sér hefði verið dömpað einu sinni enn. En núna myndi hún ekki verða á lausu lengi, því hún væri búin að skrá sig á námskeið hjá vinkonu sinni: "How to understand men in 4 days". Síðan blaðraði hún hátt allt hádegið um alla mennina sem hefðu farið illa með sig í gegnum árin en það myndi sko ekki gerast aftur, hún myndi skilja menn héðan í frá.


Heather Mills var þarna um daginn. Reyndar leit hún ósköp eðlilega út, en ég veit að oft leynist flagð undir fögru skinni og að oft reynist úlfur í sauðargærunni. Ég lét sem mér finndist ekki mikið til um nærveru hennar en reyndi að sjálfsögðu að hlera hvað ég gat af samtali hennar og tveggja vina hennar. Ég heyrði hana segja skýrt og greinilega: "The fu***** bi** is lying!" Hvort ætli hún hafi verið að tala um Stellu eða Kate? Hver ætli lygarinn sé í þessu máli?


Í hádeginu áðan sat á næsta borði rosalega huggulegt hommapar. Þeir voru mjög ástúðlegir hvor við annan þegar þeir gengu inn, annar strauk hinum létt um mjóbakið og ég hugsaði með mér hvað þeir væru sætir saman. Síðan hringdi síminn hjá öðrum þeirra. Hann svaraði og ávarpaði manneskjuna á hinum enda línunnar alltaf sem "honey". Hann sagðist vera á listasafninu og gæti ekki verið að tala í símann þar inni. Að lokum sagðist hann munu sækja börnin á leiðinni heim frá safninu.


Þetta líf, þetta líf...

Sorgleg síða

| | Comments (13)

palliogannalesouk.jpgJæja nú jæja. Ég skellti inn nýjum myndaalbúmum frá nóvember í LA og frá Þakkargjörðinni í NY. Þessi mynd er reyndar stolin frá Önnu Hrefnu, en mér finnst hún skemmtileg (myndin og Anna mega báðar taka þetta til sín). Eins og sjá má var mikil gleði í nóvember og ekki verður minni gleði í desember, ég á von á fjölskyldumeðlimum í heimsókn og síðan verða blessuð jólin haldin hátíðleg í Aspen. Þar hefur kyngt niður meiri snjó síðustu vikur en elstu menn muna að gerst hafi á þessum árstíma. Svúp, svúp, svúp...


Ég er að útskrifast með M.S. í fjármálastærðfræði í næstu viku. Tveir masterar á þrem og hálfu ári. Þó að ég líti á það sem algjör forréttindi að geta verið á frábærum stað í góðum skóla að læra það sem ég hef áhuga á þá er ég komin með meira en nóg af skólagöngu. Ég er líka komin með spennandi vinnu í LA og Palli er mjög sáttur í sinni vinnu. Við erum að skoða hús víðs vegar um borgina um þessar mundir.


Þessi síða má muna sinn fífil fegurri. Ég er búin að vera á mörkunum að loka henni í einhvern tíma, en finnst ennþá pínulítið vænt um hana. Hún var nú einu sinni besta vinkona mín fyrsta árið mitt í LA. Ég held að Guðrún Lára sé eini lesandinn um þessar mundir, en veit þó til þess að fjölskyldumeðlimir kíkja af og til á myndirnar. Kannski tek ég mig á í blogginu, kannski ekki. Þangað til finnst mér þessar síður skemmtilegar:

DD-unit. Slúðurdrottning Íslands og góð vinkona mín.
Anna Hrefna. Yndislega skemmtileg, fyndin og frábær frænka mín.
Lygasnótin. Dularfullur kvenmaður í Stokkhólmi.
Joe.My.God. Lesið 'Readers Favorites'
Dlisted. Fyndnasta slúður síðan. Þoli t.d. ekki Perez Hilton.

Jæja, sendið mér nú endilega hlekki á fleiri góðar síður, ég á eftir viku prófatörn.

Ást og virðing,
Anna Þorbjörg

Fréttir

| | Comments (3)

Af mér er allt gott að frétta.

Ég er komin á fullt í skólanum eina ferðina enn. Það fer nú að styttast í að ég hætti þessari endalausu skólagöngu.

Ég setti inn nýtt myndaalbúm í gær og von er á a.m.k. tveim albúmum til viðbótar í vikunni, þar á meðal stórglæsilegum myndum úr þrítugsafmælinu.

Ástarkveðjur,
Anna Þorbjörg

P.s. The Black Dahlia og Hollywoodland eru leiðinlegar myndir. Little Miss Sunshine er æði.

Myndir

| | Comments (15)

pottur.JPGSetti inn nokkrar myndir frá Þórsmörk. Ari hennar Halldóru vinkonu tók þessar frábæru myndir. Von er á fleiri myndaalbúmum síðar í vikunni þegar ég verð komin til LA þar sem myndavélasnúrurnar mínar gleymdust. Gjörið þið svo vel.

862-8760

| | Comments (3)

Nýja gsm númerið mitt er 862-8760. Setjið það í minnið ykkar núna!

Er á Þorgrímsstöðum og búin að hafa það frábært með vinum mínum þessa viku. Förum í Þórsmörk snemma laugardagsmorguns þar sem fjörið heldur áfram.

Respect,
Annie

Allt að gerast...

| | Comments (5)


Ég kem til Íslands fyrir allar aldir 14. júní. Tek á móti vinum mínum sólarhring síðar.


Fyrstu helgina verðum við í Reykjavík og nágrenni. Maður þarf náttúrulega að kynna fólk fyrir hinu fræga íslenska næturlífi (rugli). Á sunnudeginum munum við keyra austur fyrir fjall, gista í sumarbústað foreldra minna við Þingvallavatn, taka gullna þríhyrninginn, keyra enn lengra austur, gista í Skaftafelli, skoða Jökulsárlón, fara í vélsleðaferð frá Jöklaseli, gista hjá foreldrum mínum á Þorgrímsstöðum í Breiðdal og taka til hendinni við íslensk bústörf. Á föstudeginum 23. júní fljúgum við frá Egilsstöðum til Reykjavíkur og skellum okkur beint af stað í næstu ferð:


Fimmvörðuháls á Jónsmessunótt (23. – 25. júní)

Gengið verður eftir vinnu á föstudeginum. Á laugardeginum verður stanslaust partý í Mörkinni, sameiginilegur matur, varðeldur og gítarspil. Við erum að athuga með river-rafting í Markarfljóti á sunnudeginum áður en haldið verður í bæinn. Sendið mér endilega tölvupóst sem fyrst ef þið ætlið að slást í hópinn.


Hlakka til að sjá ykkur á Íslandi eftir nokkra daga.

Animal DNA mixed with Human DNA

| | Comments (8)

Þetta er eitt af því fyndnasta sem ég hef nokkurn tímann séð. Ég grét úr hlátri þegar ég sá þetta fyrir nokkrum mánuðum og aftur þegar ég fann þetta á netinu áðan.

Annars er allt gott að frétta. Prófin gengu vel, á bara eftir 3 valkúrsa á næstu önn. Núna eru það hins vegar æfingabúðir okkar Önnu Hrefnu og Einars fyrir CFA. 8 dagar...

Cheat Sheet

| | Comments (10)

cheatsheet.JPGÉg er að fara í tvö próf á eftir og það þriðja annað kvöld. Ótrúlega óheppin með próftöflu. Eins og svo oft þá finnst mér ég ekki hafa farið nógu vel að ráði mínu á þessu misseri og er ansi stressuð þegar einungis nokkrir tímar eru í próf. Ég er þó ekki það stressuð að ég láti það ekki eftir mér að sýna ykkur afrakstur helgarinnar. Það getur enginn sagt að hann hafi gert fallegra "svindl"-blað heldur en ég. Enginn getur tekið það frá mér, enginn!

Stjörnurnar

| | Comments (11)


jude.jpgÉg sá Jude Law á gangi hérna í hverfinu mínu í vikunni. Eins og aðrir hjartaknúsarar (Jake Gyllenhaal, Ryan Gosling og fleiri) þá var hann miklu lágvaxnari og ekki jafn huggulegur í eigin persónu. Það verður þó seint sagt um Jude að hann sé ómyndarlegur, bara ekki jafn myndarlegur og í bíó. Hann var á gangi með tvö af börnunum sínum, þau Rafferty og Iris. (Ætti ég að skammast mín fyrir að vita hvað þau heita?).


will.bmpAnnars þá er maður alltaf að rekast á kvikmyndastjörnur hérna, ég er eiginlega hætt að kippa mér upp við það, enda svöl sem ís. Einna myndarlegastur í eigin persónu (hávaxinn og í góðu formi) er Will Arnett, betur þekktur sem George Oscar Bluth úr Arrested Development. Við Palli sátum á næsta borði við hann á veitingastað um daginn og hann var að gera kanínutennur úr brauðinu sínu og Amy Poehler eiginkona hans var að deyja úr hlátri yfir uppátækinu. Amy er leikkona úr Saturday Night Live, lék líka eiginkonu Gob í Arrested Development, þessa sem fór í herinn og átti selinn alræmda með gulu slaufuna um hálsinn.


lance_armstrong.jpgVið Palli röltum út og fengum okkur sushi áðan. Fórum á einn af okkar uppáhaldsstöðum í hverfinu. Á móti okkur kom gangandi einn sá fullkomnasti líkami sem ég hef séð. Hver einasti vöðvi handleggja og fótleggja var vel þjálfaður og mjög vel greinilegur. Maður sá móta fyrir six-pack (jafnvel 8-pack) undir blautum íþróttabolnum. Þegar ég loksins leit framan í manninn sá ég að þetta var Lance Armstrong. Hann er fáheyrt dæmi um mann sem er miklu stæltari og flottari í eigin persónu (a.m.k. í dag) en maður gerði sér grein fyrir.


annahrefna.JPGAf hverju er annars miklu meira af fallegum konum í heiminum en mönnum? Mér finnst þetta vera afar ósanngjarnt, enda er ég að minnsta kosti jafn grunnhyggin og meðal karlmaður. Ég vil fleiri karlmenn sem jafnast á við konur eins og Jessicu Alba, Angelinu Jolie, Sölmu Hayek, Catherine Zetu Jones og Önnu Hrefnu Ingimundardóttur sem á einmitt afmæli í dag. Til hamingju Anna Hrefna!

Skipulagið

| | Comments (11)

poolside.jpgPrófatörn eina ferðina enn. 3 próf á 2 dögum í maí, síðan CFA-próf 3. júní. Anna Hrefna frænka og Einar koma til LA og taka CFA-prófið með mér, þannig að ég hlakka í raun og veru til að læra fyrir það próf. Við erum búin á ákveða að leigja okkur pool-side cabana á hóteli í nágrenni við mig og læra við sundlaugarbakkann. Var einmitt að panta mér nýtt lærdóms-bikiní frá shopbop.


Ég er búin að vera að rifja upp reikningshald fyrir CFA prófið síðustu vikur (svona klukkutíma á dag að jafnaði, mér tekst ekki að lesa reikningshald lengur án þess að sofna). Ég er alveg sæmilegur námsmaður, svona þegar ég legg mig fram. Af hverju virðist ég vera ómöguleg í greiningu sjóðstreymis þrátt fyrir að hafa gert í kringum 15 slík verkefni undanfarið? Aðrir hlutar reikningshaldsins virðast skýrir og rökréttir, en mér tekst að falla í sömu gildrurnar síendurtekið í sjóðstreymishlutanum. Hvernig er þetta hægt? Ég sem er búin að ná ágætum tökum á real analysis, measure theory og stókatískum calculus á meðan sjóðstreymi er að halda fyrir mér vöku. Grrr...


gudrun.JPGSumarið verður viðburðaríkt. Um miðjan júní á ég von á 4 vinum okkar í heimsókn til Íslands. Við verðum með gesti heima fram í byrjun júlí. Síðan flýg ég aftur til LA um miðjan júlí með Guðrúnu frænku með mér. Við ætlum að skottast í Kaliforníu í 2 vikur áður en hún fer aftur til Íslands og þá koma mamma, pabbi og Sigrún vinkona mömmu hingað og verða fram í miðjan ágúst. Ég mun því verða í gestgjafahlutverki í allt sumar. Ég kvíði því ekki, enda fátt sem mér finnst skemmtilegra en að hafa góða gesti í heimsókn.